Um aldir var fámenni á Íslandi, landið allt dreifbýlt og samgöngur erfiðar. Hefur þetta átt sinn þátt í því að Íslendingar mökuðust gjarnan með skyldfólki sínu, stundum systkinum. Ávöxtur slíkra ævintýra var gjarnan börn sem enginn vildi kannast við. Á Barðaströnd um miðja sextándu öld gerðist hins vegar sá fátíði atburður að piltur átti börn með tveimur systrum sínum. Öll voru þau um tvítugt.
Það gerðist á stórbýlinu Haga á Barðaströnd á fjórða áratug sextándu aldar að höfðingjasonur barnaði tvær systur sínar. Þetta voru Gísli, Kristín og Þórdís Eyjólfsbörn. Foreldrar þeirra voru Eyjólfur Gíslason, títt nefndur Mókollur, og Helga Þorleifsdóttir. Helga var dóttir hirðstjórans á Reykhólum og Eyjólfur bróðursonur Ögmundar Pálssonar, biskups í Skálholti.
Flestir höfðingjar hefðu reynt að fela þessa smán með öllum tiltækum ráðum. Borgað og hylmt yfir. En Hagafólkið viðurkenndi orðinn hlut og ákvað að taka á málinu á uppbyggilegan hátt. Voru öll systkinin þrjú send suður til Ögmundar í fóstur.
Í Skálholti var málið krufið til mergjar. Var systrunum fyrirgefið að hafa legið með bróður sínum þar sem það var talið sannað að hann hefði nauðgað þeim. Gísli var sendur með skipi til Noregs. Þar átti hann að fara í vist hjá sjálfum Ólafi Engilbriktssyni, erkibiskupi í Niðarósi. En Gísli dó skömmu eftir komuna þangað.
Þórdís varð húsfreyja á bænum Saurbæ á Kjalarnesi. Í Skálholti kynntist Kristín Gísla Jónssyni, síðar biskupi, og giftist honum.