Thermomix er einstakt fjölnota eldhústæki sem án efa mun breyta viðhorfi þínu til eldhússtarfa. Notkunarmöguleikar Thermomix spara þér tíma og fyrirhöfn með notkunarmöguleikum sínum. Þetta er einstakt eldhústæki með tólf ólíka notkunarmöguleika og stafrænu stjórnborði og uppskriftum sem fylgja. Thermomix vigtar, sýður, mixar, þeytir, saxar, blandar, hrærir, hitastýrir, gufusýður, eldar, malar og hnoðar. Allt sem þú þarft í einu tæki og eldamennskan hefur aldrei verið auðveldari.
Thermomix kom fyrst á markað árið 1961, er selt út um allan heim, nýtur sívaxandi vinsælda og er nú loksins fáanlegt á Íslandi. Hægt er að kaupa aukalega netlykilinn Cook-key til að wi-fi tengja og uppfæra vélina en einnig til að nálgast þúsundir spennandi uppskrifta.
Thermomix er framleitt í Þýskalandi og Frakklandi af þýska fyrirtækinu Vorwerk sem hefur verið starfandi frá árinu 1884. Margir kannast við Thermomix eftir að hafa búið og starfað erlendis. Eldhústöfrar ehf. er opinber dreifingaraðili Vorwerk á Íslandi. Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar vélina og heimakynningar í verslun og sýningaraðstöðu Eldhústöfra í Síðumúla 29, í síma 696-7186 eða í gegnum netfangið info@eldhustofrar.is.
https://iceland.thermomix.com/?v=0bfc16cc12ef
Eldhustofrar_3dlkx20-NY Eldhustofrar_3dlkx20-NY