fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

„Hendum skítnum beint í ruslið“ – Dönsk nýnasistasamtök dreifa áróðri

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 16. desember 2018 12:30

Norrænir nýnasistar í mótmælagöngu. Mynd/Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðlimir í dönsku nýnasistahreyfingunni Den Nordiske Modstandsbevægelse NordFront hafa í vikunni dreift flugritum í Slangerup í Frederiksssund. Íbúar í bænum hafa fengið þessa flugrit í póstkassa sína. Þá hafa veggspjöld og límmiðar einnig verið hengdir upp víða um bæinn.

Bæjarstjórinn, John Schmidt Andersen, hvetur bæjarbúa til að henda flugritunum beint í ruslið án þess að lesa þau.

„Hendum skítnum beint í ruslið.“

Sagði hann í samtali við sn.dk og að yfirvöld muni gefa því auga hvort ákveðnir bæjarbúar sýni merki um meiri róttækni í skoðunum en áður.

Hjá lögreglunni segja menn að áróður nýnasistanna sé ekki ólöglegur enda ríki tjáningarfrelsi í landinu en vakandi auga sé haft með hvort nýnasistarnir brjóti gegn ákvæðum hegningarlaga um að ekki megi smána, ógna eða gera lítið úr fólki vegna kynþáttar, uppruna, trúar eða kynhneigðar.

Á heimasíðu Nordfront kemur fram að samtökin vilji „ná völdum aftur af hinni alþjóðlegu síonísku elítu“. Auk þess vilja samtökin að þeir sem gegna herskyldu fái að halda vopnum sínum að henni lokinni og að samkynhneigðum verði bannað að ganga í hjónaband og ættleiða börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 6 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin