Maðurinn, sem er þekktur undir nafninu Joao de Deus (Joao frá guði) hefur komið fram í mörgum sjónvarpsþáttum og fréttaþáttum og er því landsþekktur. Hann er einnig þekktur utan Brasilíu og hefur bandaríska spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey meðal annars fjallað um hann og fréttaskýringaþátturinn 60 Minutes fjallaði eitt sinn um meinta lækningahæfileika hans. Hann er með höfuðstöðvar í Abadiania en kærurnar hafa verið lagðar fram víða um land.
Samkvæmt fréttum brasilískra fjölmiðla neyddi heilarinn konurnar til að veita honum munngælur þegar þær voru í einkatímum hjá honum. Hann sagði að hann gæti „hreinsað“ þær og „heilað“ með kynorku sinni.
Hollensk kona sagði í samtali við Globo sjónvarpsstöðina að heilarinn hafi nauðgað henni þegar hún var í meðferð hjá honum.