Svona lítur maginn ekki út undir eðlilegum kringumstæðum
„Ég ætla að sýna ykkur tvær myndir af mér sem voru teknar frá ólíku sjónarhorni. Ástæðan er sú að í mótsögn við það hvernig samfélagið hefur kennt okkur að hugsa þá ættum við ekki að meta okkur eftir því hversu margar fellingar við erum með á maganum, fæðingarbletti og/eða bingó undir höndunum.“
.
Þetta segir fitness gúrúrinn, Ashlie Molestad, sem skrifar pistla og gefur góð ráð á Facebook undir nafninu Foodie Girl Fitness . Ashlie setti myndirnar sem birtast hér að neðan á síðuna sína á dögunum og uppskar mikið lof fyrir að sýna hvernig maginn hennar lítur út undir eðlilegum kringumstæðum.
Þá segir hún jafnframt í pistlinum sem hefur vakið gríðarlega athygli:
„Undir þeim kröfum sem við búum við í dag er erfitt fyrir okkur að elska okkur eins og við erum. Af því að okkur er sagt að við séum ekki nógu góðar fyrr en við erum fullkomnar. Að mínu mati verðum við þó fullkomnar sama dag og við lærum að elska okkur fyrir það sem við erum.“