fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Fókus

Kristín Þóra valin í Shooting Stars 2019 – „Sýnir mjög djúpa innsýn og skilning á hlutverkum sínum“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. desember 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur verið valin í Shooting Stars hópinn árið 2019. Á hverju ári velja European Film Promotion (EFP) samtökin tíu unga og efnilega leikara og leikkonur, úr hópi aðildarlanda samtakana, sem hafa vakið sérstaka athygli í heimalandi sínu og á alþjóðavettvangi. Hópurinn verður kynntur sérstaklega á Berlinale kvikmyndahátíðinni sem fer fram dagana 7. – 17. febrúar 2019. Meðlimir EFP samtakanna eru kvikmynda- og kynningarmiðstöðvar frá 37 löndum og er Kvikmyndamiðstöð Íslands ein af þeim.

Ingvar Sigurðsson leikari var í Shooting Stars hópnum árið 1999, en í ár situr hann í dómnefnd EFP um val á leikurum. Auk hans voru Avy Kaufman sem sér um leikaraval (casting director), kvikmyndagagnrýnandinn Tara Karajica frá Serbíu, Teona Strugar Mitevska sem er leikstjóri frá Makedóníu og Macdara Kelleher, framleiðandi frá Írlandi, í dómnefndinni.

„Kristín sýnir mjög djúpa innsýn og skilning á hlutverkum sínum. Hún er einstaklega sannfærandi og endurspeglar ávallt krefjandi persónur, hún býr yfir leiftrandi og ákveðinni hæfni til að reyna á mörkin hjá upplifun áhorfenda og vinnur sér inn ítrasta traust okkar og athygli. Þetta er sannarlega ótrúlegur hæfileiki sem er einstakt í fari leikkonu,“ segir dómnefndin um valið á Kristínu Þóru.

Shooting Stars hópurinn 2019.

Kristín Þóra hefur vakið athygli og hlotið lof fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni Andið Eðlilega, eftir Ísold Uggadóttur, þar sem hún fer með hlutverk einstæðu móðurinnar Láru. Hún var valin besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni Queer Lisboa fyrir leik sinn í Andið Eðlilega, en myndin vann meðal annars verðlaun á Sundance kvikmyndahátíðinni og hefur nú unnið til alls tíu verðlauna.

Kristín lék einnig í kvikmyndinni Lof mér að falla, eftir Baldvin Z, sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto 2018. Þar fór hún með hlutverk Magneu á fullorðinsárunum sem hefur leiðst inn í harðan heim eiturlyfjafíknar. Kristín hefur leikið í verðlaunasjónvarpsþáttaseríum á borð við Fanga í leikstjórn Ragnars Bragasonar, auk þess sem hún hefur komið fram á sviði bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Kristín Þóra hefur verið tilnefnd til Grímunnar fjórum sinnum og hlaut Grímuverðlaunin árið 2016 fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki, að auki hlaut hún Stefaníustjakann frá minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2014.

Íslenskir leikarar sem áður hafa verið í Shooting Stars hópnum eru:
Ingvar E. Sigurðsson 1999,
Hilmir Snær Guðnason 2000,
Baltasar Kormákur 2001,
Margrét Vilhjálmsdóttir 2002,
Nína Dögg Filippusdóttir 2003,
Tómas Lemarquis 2004,
Álfrún Örnólfsdóttir 2005,
Björn Hlynur Haraldsson 2006,
Gísli Örn Garðarsson 2007,
Hilmar Guðjónsson 2012,
Edda Magnason (íslensk/sænsk leikkona sem var valin fyrir hönd Svíþjóðar) 2014,
Hera Hilmarsdóttir 2015,
Atli Óskar Fjalarsson 2016.

Á árunum 1998-2007 var fjöldi þátttakenda á milli 16-25 en frá og með árinu 2008 hafa einungis 10 leikarar verið valdir í Shooting Stars hópinn. Þetta er í 22. sinn sem Shooting Stars fer fram á Berlinale hátíðinni. Dæmi um þekkta leikara sem hafa verið Shooting Stars eru meðal annars Alicia Vikander (2010), Carey Mulligan (2009), Nikolaj Lie Kaas (2003),Daniel Brühl (2003) og Daniel Craig (2000).

Nánari upplýsingar um Shooting Stars 2019 má finna hér .

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sharon Osbourne dauðsér eftir Ozempic – „Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax“

Sharon Osbourne dauðsér eftir Ozempic – „Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax“
Fókus
Í gær

Simmi Vill segir að þetta sé stærsta kjarabótin fyrir íslenskar fjölskyldur – „Nú verð ég kallaður karlrembupungur“

Simmi Vill segir að þetta sé stærsta kjarabótin fyrir íslenskar fjölskyldur – „Nú verð ég kallaður karlrembupungur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð 

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð 
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kynlífsóðu klámstjörnunni sparkað úr landi

Kynlífsóðu klámstjörnunni sparkað úr landi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Konur sem sætta sig við framkomu sem þær eiga ekki skilið eru kannski í samböndum sem þeim líður ekki vel í“

„Konur sem sætta sig við framkomu sem þær eiga ekki skilið eru kannski í samböndum sem þeim líður ekki vel í“