Chrissy Teigen varð 33 ára á dögunum og af því tilefni lét faðir hennar húðflúra ristastóra andlitsmynd af dóttur sinni á upphandlegginn
Fyrirsætan og rithöfundurinn Chrissy Teigen varð 33 ára á dögunum. Faðir hennar , Ron Teigen eldri er sagður hafa fengið sér risastóra andlitsmynd af dóttur sinni, húðflúraða á upphandlegginn í tilefni dagsins. Teigen segir frá þessu á Instagram síðu sinni.
Móðir Teigen, Vilailuck Teigen, býr hjá dóttur sinni til að aðstoða við barnauppeldið en Chrissy Teigen á tvö börn með söngvaranum John Legend. Faðir Teigen býr svo rétt hjá og kemur í heimsókn á hverjum degi. Þetta hefur þótt undarlegt fyrirkomulag þar sem foreldrar hennar eru enn hamingjusamlega giftir, en búa samt á sitthvorum staðnum. „Þetta virkar bara fyrir þau. Þetta er gott fjölskyldulíf. Við erum öll mjög náin“
https://www.instagram.com/p/BrN-T25hfGq/?utm_source=ig_web_copy_link