Ráðstefnan Midgard Reykjavik var haldin helgina 15.–16. september í Laugardalshöll og gekk vonum framar, en þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan fór fram hér á landi.
Á sunnudeginum seldust miðarnir upp og töluvert var um erlenda ferðamenn á svæðinu. Allir „nördar“ gátu fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal annars var boðið upp á borðspilamót, Cosplay-keppni, víkingaslag, fyrirlestra um Star Wars og uppistand. Tölvuleikjaframleiðendur, myndlistarmenn, góðgerðarsamtök og fleiri stilltu einnig upp sölu- og kynningarbásum.
Og núna geta allir „nördar“ fagnað og tekið helgina frá því dagsetning er komin á Midgard Reykjavík 2019, en ráðstefnan mun fara fram 13. – 15. september.