fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Kaupþingskaldhæðni örlaganna

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 10. desember 2018 14:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að ýmislegt spaugilegt megi finna í nýrri bók Þórðar Snæs Júlíussonar, Kaupthinking-bankinn sem átti sig sjálfur, þó svo viðfangsefnið sé grafalvarlegt. Í bókinni er dregin upp heildarmynd af því hvernig stærsti banki Íslandssögunnar var lítið annað en svikamylla fyrir æðstu stjórnendur bankans, sem virtust líta á hann sem persónulega gullgæs og þverbrutu reglur þvers og kruss, sem enduðu í einu stærsta gjaldþroti sögunnar.

Fjallað er um fangelsisvist þeirra sem tengdust Kaupþingi í bókinni og minnst er á þegar Ólafur Ólafsson, gjarnan kenndur við Samskip, hrapaði í þyrlu sinni suður af Nesjavallarvirkjun árið 2016. Þá var Ólafur að afplána dóm fyrir aðkomu sína í Al-Thani málinu. Í tilkynningu frá Ólafi kom fram að um útsýnisflug hefði verið að ræða og ætlunin hafi verið að lenda aftur í Reykjavík.

Ólafur var á þessum tíma á áfangheimilinu Vernd, eftir að hann hafði afplánað í um eitt ár á Kvíabryggju. Reglurnar á Vernd voru ekki sérlega strangar, fangarnir höfðu í raun fullt frelsi, svo lengi sem þeir skiluðu sér aftur yfir nóttina.

Fangarnir voru þó undir rafrænu eftirliti. Það fyrirtæki sem sér um slíkt eftirlit er Öryggismiðstöð Íslands. Einn stærsti eigandi þess og stjórnarformaður er Hjörleifur Jakobsson, en hann er einn nánasti samstarfsmaður Ólafs Ólafssonar og fyrrverandi stjórnarformaður í Kaupþingi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“

Var leikmaður Liverpool að skjóta á Klopp? – ,,Aldrei verið ánægðari“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“