fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Pressan

Norrænu lögregluliðin gefa út sameiginlegan lista yfir eftirlýsta afbrotamenn – Sjáðu listann hér

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. desember 2018 07:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi hefur tekið höndum saman og gefið út sérstakan lista yfir þá afbrotamenn sem hún vill helst hafa hendur í hári. Á listanum eru þeir 12 afbrotamenn sem norrænu lögregluliðin telja mikilvægast að ná.

Listinn var birtur á föstudaginn. Þeir sem eru á honum eru eftirlýstir fyrir alvarleg afbrot, allt frá morðum til umfangsmikilla efnahagsbrota. Listinn er gefinn út á vettvangi lögreglusamstarfsins ENFAST (European Network of Fugitive Active Search Teams).

Á listanum eru að þessu sinni menn sem danska, sænska og finnska lögreglan lýsa eftir en hvorki íslenska né norska lögreglan eru með menn á listanum. Íslenska og norska lögreglan taka þó þátt í verkefninu að því er segir í tilkynningum frá dönsku og sænsku lögreglunni.

Allir þeir sem eru á listanum eru einnig á lista Evrópulögreglunnar Europol yfir þá 55 afbrotamenn sem mikilvægast þykir að hafa hendur í hári.

Hér er hægt að skoða lista norrænu lögregluliðanna.

Hér er hægt að skoða lista Evrópulögreglunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Sagði 13 ára syni sínum að hann væri aumingi af því að hann vildi ekki stunda kynlíf með vændiskonu

Sagði 13 ára syni sínum að hann væri aumingi af því að hann vildi ekki stunda kynlíf með vændiskonu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan um bleika ofurbílinn leyst

Ráðgátan um bleika ofurbílinn leyst
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvíthákarl varð manni að bana

Hvíthákarl varð manni að bana
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann

Þótti dóttirin vera „of falleg til að geta verið dóttir hans“ – DNA-próf afhjúpaði ótrúlegan sannleikann