Önnur sería þáttanna The Marvelous Mrs. Maisel eru komnir út á Amazon Prime
Hin stórkostlega frú Maisel er snúin aftur í annarri seríu þáttanna The Marvelous Mrs. Maisel. Þættirnir fjalla um frú Maisel sem er húsmóðir á sjötta áratugnum. Eiginmaður hennar vinnur sem kaupsýslumaður á daginn, en hálf glataður uppistandari á kvöldin. Maisel mætir á allar sýningar eiginmannsins, metur viðbrögð áhorfenda og gerir tillögur að úrbótum, jafnvel semur hún heilu brandarana. Dag einn kemst Maisel að því að maður hennar hefur verið henni ótrúr. Reið og ölvuð ráfar hún inn á barinn þar sem maður hennar hafði verið með uppistand, ráfar upp á svið, grípur míkrófóninn og deilir raunum sínum með áhorfendum. Kemur þá á daginn að frú Maisel er bara svona líka svakalega fyndin og bráðefnilegur grínisti. Við tekur mikið púsluspil hjá frú Maisel að flétta saman fjölskyldulífi og uppistandinu. Hún þarf einnig að ákveða hvernig hún ætlar að takast á við hliðarspor eiginmannsins og hvað með gagnrýnina um að húmorinn hennar sé aðeins of langt fyrir neðan beltisstað?
Þættirnir eru úr smiðju Amy Sherman-Palladino sem einnig gerði þættina Gillmore Girls um mæðgurnar Lorelai og Rory. Með aðalhlutverk fara, meðal annars, Rachel Brosnahan, Alex Borstein og Tony Shalhoub. Fyrsta serían kom út í fyrra og hlaut góða dóma. Inn á vefsíðu IMDB fær þáttaröðin einkunnina 8,7 og fengu þættirnir fjölda Emmy verðlauna, meðal annars fyrir bestu grínþættina, bestu leikkonu í grínþáttum og bestu aukaleikkonu í grínþætti. Þættirnir hlutu einnig Gyllta hnöttinn fyrir Bestu grínþætti og bestu leikkonu í grínþáttum.
Þættina má finna á Amazon Prime
Stikla fyrir fyrstu seríu þáttanna
Stikla fyrir aðra seríu þáttanna