Opið til kl 22 í kvöld og alla helgina
„Við erum að gera þetta að amerískri fyrirmynd enda er þetta amerískt fyrirbæri. Í fyrra fengum við mikið hrós fyrir að láta Black Friday hjá okkur standa undir nafni. Á Black Friday eiga að vera bestu tilboð ársins, þetta á að slá út allar útsölur og annað slíkt. Þetta eru valdar vörur sem henta til jólagjafa og það er farið alveg niður í kostnaðarverð, stundum jafnvel undir það. Það erum við að gera og viðbrögðin í fyrra voru frábær. Núna ætlum við að gera þetta enn betur.“
Þetta segir Egill Jóhann Ingvason, framkvæmdastjóri Rafha. Svartur föstudagur er stórviðburður í versluninni, sem er skreytt í samræmi við tilefnið og starfsfólkið er í svörtum fötum. Egill segist hafa orðið var við þá tilhneigingu að fletja út hugtakið Black Friday með tilboðum upp á 10% en þetta eigi að snúast um tilboð sem slá öllu við á vörum í takmörkuðu upplagi:
„Afslátturinn er 30-40-50% prósent og stundum ennþá meiri. Við erum líka með sérstök tilboð fyrir morgunhana, það sem Bandaríkjamenn kalla „Early Bird Offer“, en þá verður takmarkað upplag af vörum á rosalega góðu tilboði fyrir þá sem mæta í búðina strax kl. 8 um morguninn. Síðan verða nægar birgðir af vörum alla helgina á mjög góðum tilboðum.“
Rafha er fyrirtæki sem hvílir á gömlum grunni og fagnar 80 ára starfsafmæli á árinu. Fyrirtækið er leiðandi í sölu raftækja af ýmsu tagi. Rafha er núna til húsa að Suðurlandsbraut 16, Reykjavík. Á Black Friday helginni verður opið alla dagana frá kl. 8 til 22 á föstudag og frá 11 til 17 laugardag og sunnudag.
Tilboðin eru birt á vefsíðunni rafha.is. Tilboðin gilda hins vegar eingöngu í versluninni sjálfri en ekki í vefverslun.
Egill býst við gríðarlegum fjölda viðskiptavina um helgina en starfsfólki verður fjölgað og með góðu skipulagi verður séð til þess að öllum viðskiptavinum verður sinnt vel og allir eiga að geta átt skemmtilegan „svartan föstudag“ og gert frábær kaup.