Björt Ólafsdóttir fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra og eiginmaður hennar Birgir Viðarsson hafa sett eign sína við Hvassaleiti á sölu, ásett verð er 96 milljónir.
„Ég held ég verði að viðurkenna að verktakabransinn fer vel við gera og græja hliðina á mér. Héðan vorum við alls ekkert á förum en svona er að geta ekki setið kyrr og vera sífellt með æsing í stærri verkefni og meira stúss,“ segir Björt á Facebook-síðu sinni, en þau hjónin eiga von á fimmta barninu á næsta ári.
Húsið er 250 fermetra raðhús með bílskúr, sem byggt var 1962, með fimm svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Fasteignamat raðhússins er rúmlega 70 milljónir.
Stofuna prýðir fallegur arinn sem hlaðinn er úr Drápuhlíðargrjóti.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.