Tæpt er að Andrew Robertson og Sadio Mane verði með Liverpool gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Báðir meiddust gegn Everton á sunnudag en minni líkur eru á að Mane nái sér heilum.
,,Við þurfum að skoða Sadio og Robbo í dag,“ sagði Klopp við fréttamenn í dag.
Mane fékk ljótan skurð á löppina og hefur hingað til ekki farið í skó.
,,Sadio fékk ljótan skurð, það hefur verið saumað. Hann labbar um í inniskóm en því miður spilum við ekki í þannig skóm.“