Hjónin Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, og Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur, hafa sett íbúð sína á Ásvallagötu á sölu.
„Jæja kæru Facebook vinir, þá er komið að því að selja þessa fallegu íbúð á allra besta stað í gamla vesturbænum. Eins og kettlingaforeldrar, vonumst við eftir því að hún komist í góðar hendur. Það verður opið hús á þriðjudaginn kl 17.15!
Vinsamlegast deilið því þetta ættu að vera mjög góð kaup fyrir fjölskyldu sem er aðeins minni en okkar,“ skrifar Kristján á Facebook-síðu sinni.
Íbúðin er fjögurra herbergja á 2. hæð, verulega aukin lofthæð er í íbúðinni, og er hún björt og falleg.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.