Leikarinn Robert De Niro og eiginkona hans, Grace Hightower, eru skilin eftir 20 ára hjónaband.
Samkvæmt heimildamanni People eru þau þegar flutt í sundur. „Stundum verða hlutirnir ekki eins og þú vildir að þeir yrðu eða vonaðist til.“
De Niro, sem er 75 ára, og Hightower, sem er 63, giftu sig árið 1997 eftir að hafa verið í sambandi í áratug. Þau eiga tvö börn saman, Elliott, 20 ára, og Helen Grace, sex ára. De Niro á fjögur önnur börn: dótturina Drena, 47 ára, og soninn Raphael, 42 ára, með fyrri eiginkonu sinni Diahnne Abbott, og 23 ára tvíburasyni, Julin og Aaron, með fyrri kærustu, Toukie Smith.
Þetta er ekki í fyrsta sem sem þau hafa skilið. Árið 1997 óskaði De Niro eftir skilnaði og stofnaði til forræðisdeilu yfir syni þeirra. Hjónakornin sættust þó í það sinn og skilnaður gekk aldrei í gegn.
Í nóvember 2004 endurnýjuðu þau heiti sín og var stórstjörnum boðið í veislu, meðal annars Martin Scorsese, Meryl Streep og Ben Stiller. Grínaðist De Niro þá með, með vísan til skilnaðarins 1997, að hann ætlaði að vera viss um „að þessi myndi endast.“
Síðast sást til þeirra opinberlega saman á rauða dreglinum í júní þegar þau mættu á Tony verðlaunahátíðina í New York. De Niro hefur verið þekktur fyrir að halda einkalífi sínu fyrir utan sviðsljósið.