Verkefni dagsins er mjög einfalt og mjög nauðsynlegt. Ég hvet þig eindregið til að gera þetta verkefni að venju uppá nánast hvern einasta dag.
Verkefni dagsins
Tæmdu allar ruslafötur heimilisins og settu nýjan poka.
Stutt og laggott verkefni sem tekur mjög stuttan tíma og gefur virkilega góða tilfinningu. Fyrir þá sem eru í stuði, þá er tilvalið að þrífa ruslaskápinn í leiðinni…
Smá tips: það er sniðugt að geyma tóma poka í botninum á ruslafötunni – þá þarftu ekki að leita að poka til að setja nýjan eftir að þú hefur farið út með ruslið. Það gæti orðið til þess að þú lætur ruslið ekki yfirfyllast.
Stutt „ég skil ekki“ móment: ég skil ekki af hverju fólk fer ekki út með ruslið áður en það verður yfirfullt… ég bara skil það ekki! (Ég þarf svo sem ekki að skilja allt).