Dagur 2 – tiltekt
Sama hver þú ert eða á hvaða aldri – þá get ég nánast fullyrt að sú skúffa sem þú opnar oftast á hverjum degi er hnífaparaskúffan. Ég er með nokkrar spurningar til þín:
Ef þú svarar einni eða fleirum af þessum spurningum neitandi þá mun verkefni dagsins slá í gegn
Verkefni dagsins
Opnaðu hnífaparaskúffuna. Taktu allt upp úr henni og settu það á bekkinn. Taktu þér tusku og þrífðu innan úr henni. Raðaðu svo aftur ofan í skúffuna, því sem þú ert vön/vanur að nota og því sem þú þarft. Settu afganginn í til dæmis box og settu það til hliðar. Kannski sérðu eitthvað sem þú vilt henda – hver veit?
Sniðugt að taka fyrir og eftir mynd. Um að gera að pósta henni á Instagram undir #sjödagatiltekt