Söngkonan Svala Björgvinsdóttir er alflutt heim og leitar að leiguíbúð í Hafnarfirði.
Svala bjó um árabil í Los Angeles ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, Einari Egilssyni, en þau voru saman í hljómsveitinni Steed Lord.
Svala er hins vegar flutt heim til Íslands aftur, einbeitir sér að sólóferlinum og er komin með nýjan kærasta.
Ef þú ert með íbúð á lausu þá máttu endilega hafa samband við hana á Facebook.