Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins í dag. Þar segir að Harpa hafi hleypt syni sínum inn á heimilið í september eftir að hann hafði setið þar fyrir utan, illa á sig kominn og grátandi.
„Ég gaf honum að borða og skipaði honum í sturtu en svo á meðan ég var að elda kvöldmatinn sprautaði hann sig inni á klósetti og var næstum dáinn á mínu heimili fyrir framan mig og bræður sína.“
Er haft eftir Hörpu. Sonur hennar hefur verið í fíkniefnaneyslu síðan um aldamótin og sprautufíkill síðan 2010.
„Það er bara skelfilegt þegar þú ert kominn út í það. Það er svo erfitt að komast úr því. Þetta eru svo ofboðslega mikil veikindi.“
Segir Harpa sem er stöðugt með áhyggjur af syni sínum. Hún segir þetta hafa mikil áhrif á sig og fjölskylduna og hún viti aldrei hvort hún er að sjá hann í síðasta sinn.
„Hann er náttúrlega að horfa á þá sem voru með honum í meðferð og félaga sína vera að falla núna og bara það að vita af honum á götunni gerði mig alveg skelfilega hrædda. Síðast þegar hann var hérna heima sprautaði hann sig einmitt og ég þurfti að hringja á sjúkrabíl. Maður veit aldrei þegar maður sér hann hvort það sé í síðasta skipti. Það er sá kvíði. Yfirleitt þegar ég sé ókunnug símanúmer þá get ég ekki svarað þeim en ég ákvað að svara núna. Maður verður bara að vera sterkur.“
27 manns, yngri en 39 ára, hafa látist af völdum fíknar það sem af er ári en tölurnar eru fengnar úr gagnagrunni SÁÁ. Í þessu samhengi hefur verið rætt um að faraldur fíknisjúkdóms sé að ræða.
Harpa segir að það verði að ráðast í aðgerðir vegna biðlista sem víðast eru í þau meðferðarúrræði sem eru í boði hérlendis.