Þegar Ósk Arnþórsdóttir var einungis 15 ára gömul hóf hún samband með manni sem var sjö árum eldri en hún. Fljótlega fór að bera á því að ekki væri allt með feldu og átti hann eftir að beita hana andlegu og líkamlegu ofbeldi allt þeirra samband.
Hann var sjúklega ástfangin af mér og ég var rosalega glöð að einhver skyldi sýna mér athygli. Hann fór yfir öll mörk sem ég átti,
segir Ósk í einlægri færslu á Facebook sem hún ritar til að vekja athygli á átaki Stígamóta „Sjúk ást“.
Hann byrjaði á því að beita mig andlegu ofbeldi þegar við vorum búin að vera saman í kannski tvo mánuði. Hann sagði við mig að ég væri heppin að hann vildi vera með mér því engin annar myndi líta við mér.
Fljótlega mátti Ósk ekki hitta stráka vini sína og í kjölfarið taldi hann henni trú um að stelpurnar hefðu slæm áhrif á hana.
Svo kom hann því inn í hausinn á mér að fjölskylda mín væri vond við mig og vildu ekkert með mig hafa. Ég fór því að loka mig meira af og tala minna við vini og fjölskyldu.
Ósk greinir frá því að þegar maðurinn hafi verið í vinnunni hafi hann bannað henni að fara út úr húsi til þess að koma í veg fyrir að hún myndi hitta einhverja stráka.
Ef hann fékk ekki það sem hann vildi, þá tók hann það með afli. Ég man sérstaklega eftir því þegar hann tók mig hálstaki og kreisti eins fast og hann gat. Þá spurði hann mig hvort ég væri hrædd og greindi mér frá því að ég ætti að vera það. Svo sleppti hann mér rétt áður en ég missti meðvitund.
Sambandið gekk áfram í sex ár og á meðan hafði Ósk ekki stjórn á neinu, hún var hans eign.
Alveg sama hvað ég reyndi, allt sem ég gerði var rangt. Ég var ljót og asnaleg og rosalega heppin af því að hann vildi mig, en enginn annar.
Ósk segir að maðurinn hafi lifað inni í hausnum á henni. Hans skoðanir hafi verið hennar skoðanir og hún vissi ekki hver hún var.
Ef ég vildi fara frá honum, þá hótaði hann því að drepa sig og að ég myndi þurfa að hafa það á samviskunni að hafa drepið blásaklausan mann.
Eftir sex löng ár komst Ósk loksins út úr sambandinu með aðstoð fjölskyldu og vina.
Ég var rosalega hrædd, rosalega lengi. Ég fékk martraðir og vaknaði grenjandi á nóttunni og hélt að hann væri að koma að drepa mig, hann hafði jú hótað því margoft.
Ósk leitaði sér aðstoðar hjá Aflinu sem eru samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi.
Enn þann dag í dag er ég að kljást við það sem hann gerði mér. En ég er ekki lengur hrædd við hann, ég er margfalt sterkari en brotna stelpan sem gekk í burtu frá honum fyrir að verða sex árum síðan. Ég kynntist sjálfri mér upp á nýtt og enginn fær aftur að gera mér það sem hann gerði.
Ósk biðlar til fólks sem er í sömu stöðu að leita sér hjálpar, alveg sama hverju gerandinn hótar.
Þetta er ekki þess virði að missa mörg ár af lífinu sem þú færð aldrei aftur. Þú getur ekki hjálpað manneskjunni því hún er sjúk.