Tíu ára gömul stúlka sem talið er að hafi verið nauðgað af eldri bróður sínum hefur nú gengið með og eignast barn. Barnið var tekið með keisaraskurði og eru þau bæði sögð vera við góða heilsu.
Stúlkan var höfð undir eftirliti á spítala í bænum Puerto Leguizamo í Colombia og fæddist barnið þar. Camilo Diaz framkvæmdastjóri spítalans ræddi við fjölmiðla í kjölfar fæðingarinnar.
„Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum fengið frá lögreglunni varð stúlkan ólétt eftir að hafa verið misnotuð kynferðislega af fjölskyldumeðlimi, bróður sínum.“
Samkvæmt fjölmiðlum á staðnum vildu foreldrar stúlkunnar ekki segja yfirvöldum frá broti sonar síns en lögreglan á staðnum er þó að rannsaka málið. Hvorki stúlkan né barnið hafa verið nafngreind að svo stöddu.