Gamansama þáttaröðin Venjulegt fólk var frumsýnd í heild sinni í Sjónvarpi Símans Premium á föstudag og hefur heldur betur slegið í gegn því þáttaröðin var spiluð yfir 50 þúsund sinnum á aðeins þremur dögum og náðust yfir 700 þúsund spilanir í Sjónvarpi Símans Premium í síðustu viku, meira en nokkru sinni fyrr og hafði Venjulegt fólk veruleg áhrif á þennan spilunarfjölda.
Sjónvarp Símans Premium er stærsta íslenska efnisveitan og telur nú um 37 þúsund viðskiptavini – sem hafa fallið fyrir hinni bráðskemmtilegu gamanseríu Venjulegu fólki.
Lestu einnig: Venjulegt fólk forsýningarpartý – Sjáðu myndirnar
Venjulegt fólk er gamansöm þáttaröð um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna. Að upplifa frægð og frama er ekki bara dans á rósum heldur hefur það ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þær, fjölskyldu og vini.
Með aðalhlutverk fara þær Vala Kristín, Júlíana Sara (Þær tvær), Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst. Vala og Júlíana skrifa þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum en hann leikstýrir einmitt þáttunum.