Ninna Karla Katrínardóttir er um þessar mundir að gefa egg í annað skiptið og segist hún ætla að halda áfram að gefa þar til hún má það ekki lengur.
Í fyrsta skiptið sem ég gaf egg þá bað vinkona mín mig um að gefa sér það. Ég hafði ætlað að gera þetta heillengi en aldrei gert neitt í því og dreif því loksins í því. Núna er ég að gefa í annað skipti og ég gef vegna þess að það er löng bið eftir eggjum og mig langar að hjálpa fólki að láta drauma sína um barneignir rætast,
segir Ninna í viðtali við Bleikt.is
Sjálf á Ninna tvær dætur og telur hún ekki líklegt að hún muni sjálf eignast fleiri börn.
Ég horfi þannig á þetta að ég á fullt af eggjum sem ég hef engin not fyrir, ég er búin að eignast börn og ætla mjög líklega ekki að eiga fleiri svo mig langar að aðrir geti upplifað þetta dásamlega hlutverk sem er að verða foreldri.
Ninna starfar í versluninni Ikea en hefur alla tíð haft mikinn áhuga a leiklist og hefur hún leikið með áhugaleikfélögum í mörg ár. Ninna er einnig í tveimur hljómsveitum og elskar hún að syngja og spila á hljóðfæri.
Mér finnst það ekki, ég er nýbyrjuð að sprauta mig með örvunarlyfjunum. Fyrst þegar ég sprautaði mig var aðeins erfitt að mana mig í að stinga sprautunni í mig en eftir fyrsta skiptið var það ekkert mál.
Ninna segist alls ekki hafa áhyggjur af því að líða eins og hún eigi hluta í barninu en segist hún þó vilja vera opin gjafi barnsins vegna.
Mér finnst mikilvægt að barnið geti leitað uppruna síns þegar það er komið með aldur til þess.
Ferlið tekur rúmlega mánuð og segir Ninna að það taki ekki mikið á.
Ég varð aðeins viðkvæm neðst á magasvæðinu síðast og varð rosalega meyr, grét yfir öllu eins og þegar ég var ólétt. En þetta hafði ekki mikil áhrif ég missti kannski tvo til þrjá daga úr vinnu en það er nú ekkert hrikalegt.
Ninna segist stefna á það að gefa eins oft og hún má þar til hún verður orðin of gömul.
Það er ekki leyfilegt að gefa egg eftir 35 ára aldur en ég mun gera þetta eins oft og ég get þangað til. Það er svo frábært að geta gefið fólki tækifæri til þess að verða foreldrar.
Ninna vonast til þess að með því að opna umræðuna á egggjafa þá muni fleiri konur fara að gefa egg. Tók Ninna ákvörðun um að tala opinskátt um ferlið á snappinu sínu og svara öllum þeim spurningum sem henni berast.
Hægt er að fylgjast með Ninnu á Snapchat undir notandanafninu: ninnakarla