Venjulegt fólk sjónvarpsserían var frumsýnd í heild sinni á Sjónvarpi Símans Premium á föstudag.
Daginn áður mættu leikarar og aðstandendur seríunnar ásamt góðum gestum í Smárabíó þar sem horft var á fyrstu tvo þættina. Gestir skemmtu sér konunglega og hefur serían slegið í gegn um helgina.
Venjulegt fólk er gamansöm þáttaröð um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna. Að upplifa frægð og frama er ekki bara dans á rósum heldur hefur það ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þær, fjölskyldu og vini.
Með aðalhlutverk fara Vala Kristín, Júlíana Sara (Þær tvær), Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst. Vala og Júlíana skrifa þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum en hann leikstýrir einmitt þáttunum.