Valþór Örn Sverrisson hringdi sprenghlægilegt símaat í verslunina Hestar og Menn í dag.
Ég er með smá fyrirspurn, ég var að horfa á kvikmynd í gær, þarna Fifty Shades of Grey. Ég fékk eitthvað svo mikinn innblástur og ég var að spá hérna hvort þið séuð með einhverja svona tauma og písk sem passar á fólk?
Aðspurður út í hugmyndina að símaatinu segist Valli ekki hafa hugmynd hvað hann hafi verið að spá.
Ég er bara svo steiktur,
segir hann og hlær.
Meðfylgjandi er upptaka af símaatinu og fær konan sem svarar símanum hrós fyrir að ná að halda ró sinni í gegnum símtalið. Hægt er að fylgjast með uppátækjunum hans Valþórs á Snapchat: vallisverris