Fabinho miðjumaður Liverpool hefur opnað sig um erfiðan tíma hjá félaginu til að byrja með.
Fabinho fékk ekkert að spila framan af á þessu tímabili en hefur byrjað síðustu tvo leiki.
Liverpool keypti Fabinho á 40 milljónir punda í sumar frá Monaco.
,,Ég er mjög ánægður að byrja tvo leki í röð, það er gott fyrir mig,“ sagði Fabinho.
,,Að aðalagast hefur reynst mér erfitt, erfitt að sitja oft á bekknum. Ég var oft í röð ekki valinn.“
,,Ég reyndi að læra af þessu, reynd að æfa mig. Þjálfararnir voru góðir við mig, þeir leyfðu mér ekki að vera í fýlu.“
,,Ég fékk tækifæri síðasta miðvikudag, ég lék vel þar og gegn Cardiff líka.“