fbpx
Föstudagur 08.nóvember 2024
Fréttir

Nakinn maður í Kópavogi barinn sundur og saman af lögreglunni

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. október 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harkaleg handtaka lögreglu á nöktum manni náðist á myndband. Vísir birtir myndband af manninum sem var að reyna að brjótast inn í hús í Kópavogi. Líkt og DV greindi frá í morgun réðist maðurinn á  lögreglumenn sem komu á vettvang, hann hafði þá afklætt sig og var nakinn. Líklegast var það ekki vegna hita og veðurblíðu sem hann fækkaði fötum. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu en hann er grunaður um eignaspjöll, hótanir, ofbeldi gegn opinberum starfsmanni og ýmislegt fleira.

Hér fyrir neðan má sjá myndband Vísis af handtökunni en ítarlega er fjallað um málið á miðlinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt