fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024

Telma Kristóbertsdóttir upplifði kynja vonbrigði: „Mér fannst ég upplifa einskonar missi“

Aníta Estíva Harðardóttir
Fimmtudaginn 1. mars 2018 11:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Telma Kristóbertsdóttir skammaðist sín lengi fyrir þær tilfinningar sem hún upplifði þegar hún átti frumburð sinn og komst að því hvort kynið hún hafði gengið með.

Um leið og ég fékk jákvætt óléttupróf var það sameiginleg ákvörðun hjá okkur kærastanum að við ætluðum ekki að fá að vita kynið. Mér fannst tilhugsunin ótrúlega spennandi að fá ekki að vita það fyrir fram enda var okkur alveg sama hvort kynið við fengjum því mestu máli skipti að það væri allt í lagi með barnið,

segir Telma í einlægri færslu sinni á Uglur.

Tilbúin til þess að veðja upp á kynið

Þegar Telma var hins vegar gengin 10 vikur á leið fékk hún sterka tilfinningu fyrir því að hún gengi með strák.

Ég hugsaði um litla bumbukrílið mitt sem strák og þegar ég talaði um það sagði ég alltaf hann. Mig langaði líka miklu meira til þess að eignast strák. Undir lok meðgöngunnar var kærasti minn alveg viss um að þetta væri lítil pabba stelpa en fólk var farið að segja við okkur að vera ekki með of miklar væntingar. Ég var hins vegar alveg tilbúin til þess að velja ansi hárri peningaupphæð á það að ég hefði rétt fyrir mér.

Þegar Telma mætti svo á fæðingardeildina voru ljósmæður hennar sammála henni og töldu víst að hún gengi með strák.

Ég veit ekki hvort mín sannfæring hafi haft áhrif á þær en þær voru sammála mér. Eftir marga klukkutíma af sársauka og vanlíðan fæddist loksins litla kraftaverkið okkar. Fljótlega heyrist í kærasta mínum „ég held ég hafi haft rétt fyrir mér! Þetta er stelpa!“ Ég gat engan vegin meðtekið hvað hann hafði sagt og upplifði mikla hamingju þegar ég fékk hana í fangið.

Dóttirin fór á vökudeild og Telma var í áfalli

Dóttir Telmu þurfti að fara á vökudeild strax eftir fæðinguna og fór kærasti hennar ásamt fleira fagfólki með henni þangað.

Fljótlega var ég ein með mömmu minni og ljósmóðurinni og var í miklu áfalli. Ég talaði endalaust um það að ég gæti ekki átt stelpu, að ég kynni ekkert á þær og kynni bara á stráka. Í raun varð ég fyrir miklum vonbrigðum því mér var farið að þykja mjög vænt um litla strákinn sem var í bumbunni og hlakkaði mikið til að sanna fyrir öllum að ég hafði haft rétt fyrir mér.

Í kjölfarið tók það Telmu lengri tíma að tengjast dóttur sinni.

Mér fannst ég upplifa einskonar missi af því að ég fékk eitthvað annað en ég vildi. Ég elska Halldóru Líf meira heldur en lífið sjálft í dag og ég vil allt fyrir hana gera. Hún litar heiminn minn í allskonar litum hvern dag og er og verður alltaf mín besta vinkona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Sjálfstæðisflokkur mælist með 16% fylgi í nýrri könnun frá Gallup

Sjálfstæðisflokkur mælist með 16% fylgi í nýrri könnun frá Gallup
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni – Landsleikirnir gerðir upp og Adam Páls í beinni frá Ítalíu

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni – Landsleikirnir gerðir upp og Adam Páls í beinni frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Er að fá verulega launahækkun hjá Arsenal

Er að fá verulega launahækkun hjá Arsenal
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Nicole Kidman sögð ljúga um frægu ljósmyndina

Nicole Kidman sögð ljúga um frægu ljósmyndina
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Dularfull dagsetningardeiling sjónvarpsstöðvanna veldur netverjum heilabrotum – „Hvað er í gangi? Samruni?“

Dularfull dagsetningardeiling sjónvarpsstöðvanna veldur netverjum heilabrotum – „Hvað er í gangi? Samruni?“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Stríðið milli Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna heldur áfram

Stríðið milli Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna heldur áfram
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sigmundur Davíð tjáir sig harkalega um VMA-málið – „Allt einhver fullkomin þvæla frá einstaklingi sem var ekki á staðnum“

Sigmundur Davíð tjáir sig harkalega um VMA-málið – „Allt einhver fullkomin þvæla frá einstaklingi sem var ekki á staðnum“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Maður á fimmtugsaldri með gífurlegt magn af þýfi úrskurðaður í gæsluvarðhald

Maður á fimmtugsaldri með gífurlegt magn af þýfi úrskurðaður í gæsluvarðhald