Manchester United verður án Alexis Sanchez, Marouane Fellaini og Diogo Dalot um helgina.
United tekur á þá á móti Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum hans í Everton á sunnudag.
Jesse Lingard er hins vegar að ná heilsu og gæti tekið þátt í leiknum.
,,Hann er að ná heilsu, getur hann spilað næsta leik? Það er eitthvað sem við þurfum að ákveða,“ sagði Jose Mourinho.
United þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda ef liðið ætlar að eiga veika von á því að ná Meistaradeildarsæti.
Jose Mourinho says @JesseLingard and @McTominay10 could feature against Everton but @DalotDiogo, @Fellaini and @Alexis_Sanchez remain absent. #MUFC
— Manchester United (@ManUtd) October 26, 2018