Ragnheiður Elín Árnadóttir, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur jafnan vakið athygli fyrir skelegga framkomu og fylgni við þau hugðarefni sem hún berst fyrir. Núna leitast hún ásamt fleirum við að varðveita Sundhöllina í Keflavík, en hún býr í Reykjanesbæ ásamt eiginmanni sínum, Guðjóni Inga Guðjónssyni framkvæmdastjóra.
„Það skiptir engu hvar fólk er búsett, gömul hús með sögu varða alla landsmenn. Verk Guðjóns Samúelssonar eiga þar að auki sérstakan sess í hugum okkar og sögu,“ segir Ragnheiður meðal annars um Sundhöllina.
Það sem ekki allir vita er að mágur Ragnheiðar er Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður og nútímafræðingur, Biggi lögga eins og hann er best þekktur. Biggi hefur einbeitt sér að lögreglustarfinu frá útskrift árið 2004, fyrir utan að hann tók sér frí í fyrra og reyndi fyrir sér í flugþjónsstarfinu með góðum árangri. Í fyrra má segja að hann hafi einnig reynt að feta veg mágkonu sinnar, en þá bauð hann sig fram í 3. sæti suður fyrir Framsóknarflokkinn fyrir alþingiskosningarnar.
Þau eru bæði virk á samfélagsmiðlum og hafa pistlar þeirra þar, sem oft vekja athygli og umtal, margoft ratað í fjölmiðla, þar á meðal DV.