Manchester United er að ræða nýjan samning við Anthony Martial sóknarmann félagsins.
Martial er 22 ára gamall en United er sagt bjóða honum 160 þúsund pund á viku.
Það er 85 þúsund pundum meira á viku en Martial þénar í dag en hann er með 75 þúsund pund á viku.
Martial hefur skorað 40 mörk í 142 leikjum fyrir United en mikið af þeim leikjum hefur verið sem varamaður.
Stórlið eru sögð hafa áhuga á Martial en hann ku vilja framlengja dvöl sína á Old Trafford.