Anthony Martial sóknarmaður Manchester United vonast eftir því að félagið vilji gera við hann nýjan samning. Þetta segja miðlar í heimalandi hans.
Samningur Martial við United rennur út næsta sumar en United getur framlengt hann um eitt ár.
Martial hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum og er sagður vilja framlengja dvöl sína á Old Trafford.
RMC segir að Martial vilji nýjan samning sama hvort Jose Mourinho haldi áfram eða ekki.
Martial hefur gríðarlega hæfileika sem ekki hafa sprungið út en United hefur trú á að það gerist.
Sagt er að United muni á næstu vikum byrja að ræða við Martial og umboðsmann hans um nýjan samning.