Hljómsveitin Flekar heldur veglega útgáfutónleika á Húrra á morgun, miðvikudag, kl. 20 og mun stórvinkona hljómsveitarinnar hún Lay Low sjá um upphitun. Á tónleikunum mun hljómsveitin leika sína fyrstu plötu, Swamp Flowers, í heild sinni.
Í hljómsveitinni Flekar eru Sigurbjörn Már Valdimarsson, sem sér um bassaleik og bakraddir, Skúli Arason, sem sér um trommuleik og bakraddir og Vignir A. Guðmundsson, sem sér um söng og gítarleik.
Þeim til aðstoðar á tónleikunum verða Bjarni Ævar Árnason úr hljómsveitinni Kiryama Family sem sér um hljóðgerflaleik og Kristin Þór Óskarsson, úr hljómsveitinni Hide Your Kids, sem sér um rafgítarleik.
Platan Swamp Flowers er mikið heimabrugg og hefur verið legið yfir útsetningum og lagasmíðum ótal síðkvöld síðan fyrstu skrefin í átt að plötu voru tekin. Hljóðheimur plötunnar er því margbrotinn og verður því heilmikið um að vera hjá hljóðfæraleikurum við að reyna að fanga anda plötunnar á sviði.
Sigurbjörn Már á heiðurinn af hljóðheimi plötunnar en hann sá um upptökur og hljóðblöndun. „Það var afar ánægjulegur hluti af ferlinu að fylgjast með hvernig afmarkaðar hugmyndir í hljóðveri verða að einhverju allt öðru í hljómsveitarútsetningum,“ segir Sigurbjörn Már.
„Það var sá hátturinn hjá okkur í upptökuferlinu að við spiluðum og sungum inn það sem okkur þótti þjóna lögunum, án þess að hugsa endilega um hvernig við myndum útfæra það á sviði. Þannig fæ ég til dæmis að syngja bakraddir á meðan ég tromma oft og tíðum margslungnar kaflaskiptingar,“ segir Skúli Arason trommuleikari, sem er sérlega spenntur fyrir sínu hlutverki.
Platan verður til sölu á tónleikunum og er hún eins fáanleg í glæsilegri vínylútgáfu í helstu plötubúðum og á helstu streymisveitum. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og kostar litlar 1.500 krónur inn.