Hann er ekki bara leiðinlegi dómarinn í American Idol og X Factor, því þegar á hólminn er komið slær gullhjarta í hinum geðstirða Simon Cowell.
Á laugardag póstaði Cowell myndbandi þar sem hann hvetur aðra til að láta gott af sér leiða.
„Þessi drengur er fjögurra ára og þarf peninga til að komast til Ástralíu til að fá hjálpina sem hann þarf,“ segir Cowell. „Ég bið ykkur að fara á síðu Zac Oliver á Justgiving og hvaða upphæð sem þið hafið tök á að gefa mun hjálpa til. Og þar sem ég kann illa við að efnað fólk biðji aðra um að gera eitthvað og geri ekkert sjálft, þá ætla ég að láta 50 þúsund pund sjálfur í málefnið. Við munum ná þessu.“
Zac Oliver glímir við sjaldgæfa tegund af hvítblæði sem kallast Near Haploid og því eru foreldrar hans að leitast við að safna 500 þúsund pundum til að koma syninum til Bandaríkjanna í meðferð, en meðferðin er ekki í boði í Bretlandi.
Móðir Zac, Hannah Oliver-Willets, deildi myndbandi Cowell á samfélagsmiðlum: „Takk Simon Cowell fyrir að styðja við málstað okkar. Ég er búin að segja Zac frá að þú sért að hjálpa okkur að greiða fyrir lækninn hans. Zac er þó ekki alveg að skilja hvað þetta skiptir miklu og hvað það munar litlu að við erum að komast til Bandaríkjanna.“
Fjölskyldan var búin að ná að safna 350 þúsund pundum og með framlagi Cowell náðu þau því 400 þúsund pundum.