Shamrock Rovers á Írlandi hefur staðfest að Gavin Bazunu markvörður félagsins fari til Manchester City á nýju ári.
City hafði betur í baráttu við Chelsea og Tottenham um að landa þessum táningi.
City borgar 400 þúsund pund fyrir Bazunu sem er hæsta verð sem írskt félag hefur fengið fyrir atvinnumann í fótbolta.
Bazunu verður 17 ára í febrúar en hann hefur spilað sex leiki fyrir aðallið Shamrock.
Bazunu hélt hreinu í fyrstu fjórum leikjum sínum og þykir rosalegt efni.