Í tilefni af fullveldisafmæli Íslands opnar Bókmenntaborgin Reykjavík októbermánuð með ljóðaviðburðinum Mótþróa í Iðnó og gefur í leiðinni út tvær ljóðaarkir með ljóðum sem ort voru í tilefni fullveldisafmælisins.
Ljóðin voru ort í ritsmiðjum í maí og júní sem haldnar voru í tveimur skáldahúsum, Gröndalshúsi í Reykjavík og Skriðuklaustri í Fljótsdal. Smiðjurnar voru undir stjórn ljóðskáldsins Fríðu Ísberg sem einnig er ritstjóri ljóðverksins.
Skáldin komu saman og ræddu fullveldi þjóðar og fullveldi/sjálfstæði einstaklingsins og hvernig skilningur okkar á hugtökunum hefur breyst frá árinu 1918.
Smiðjurnar voru framkvæmdar með styrk frá Fullveldissjóði Íslands.
Viðburðurinn er í Iðnó 1. október klukkan 20 og hefst með ávarpi Andra Snæs Magnasonar rithöfundar og formanns stjórnar Bókmenntaborgarinnar. Fríða Ísberg flytur síðan stefnuyfirlýsingu Mótþróaskáldanna og loks flytja skáldin brot af verkum sínum. Á viðburðinum verður útgáfu ljóðverksins Mótþróa fagnað og fá gestir eintak af ljóðverkinu.
Skáldin eru: Anna Hafþórsdóttir, Brynjólfur Þorsteinsson, Ella Wiberg, Eydís Blöndal, Fríða Ísberg, Hertha Richardt Úlfarsdóttir, Hólmfríður María Bjarnardóttir, Jón Örn Loðmfjörð, Nanna Vibe, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sólveig Eir Stewart, Stefanía dóttir Páls, Úlfur Bragi Einarsson, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.
Mótþrói í Vonarstræti
Ljóðverkin lifa áfram í Bókmenntaborginni út októbermánuð á vegg Ráðhússins í Vonarstræti þar sem þeim verður varpað upp í hauströkkrinu.
Nánar um smiðjustjórann og ritstjóra ljóðverksins Mótþróa, Fríðu Ísberg:
Fríða Ísberg er fædd árið 1992. Hún lauk grunnprófi í heimspeki og meistaraprófi í ritlist við Háskóla Íslands. Hún tilheyrir sex-kvenna-ljóðakollektívinu Svikaskáld, en þær gáfu út ljóðabókina Ég er ekki að rétta upp hönd 2017 og Ég er fagnaðarsöngur 2018. Hún skrifar bókmenntarýni fyrir Times Literary Supplement. Árið 2017 hlaut hún nýræktarstyrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta fyrir sína fyrstu ljóðabók, Slitförin. Slitförin kom út hjá Partusi haustið 2017. Fríða hlaut Verðlaun Bóksala 2017 fyrir bestu ljóðabókina og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2018 fyrir fyrrnefnda bók.