Hjónin Logi Bergmann Eiðsson og Svanhildur Hólm Valsdóttir skelltu dóttur sinni í pössun í liðinni viku en þingmaðurinn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hjálpaði þeim hjónum. Hrafnhildur Hólm, dóttir þeirra hjóna, fór með Áslaugu í Bláa lónið en með í för voru einnig dætur Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Svanhildur hafði áhyggjur af því að dóttir hennar myndi ekki nærast nóg hjá Áslaugu sem er einhleyp. „Ég tók líka nesti fyrir skólann á morgun því mamma segir að þú eigir aldrei neinn mat,“ sagði sú stutta við Áslaugu sem greinir frá þessu á Twitter. Þær stöllur nærðust þó vel og skelltu sér í bakarí eftir góðan svefn.