Í það minnsta sex íslenskar konur sóttust eftir því að verða forsíðustúlka karlablaðsins Maxim. Um er að ræða alþjóðlega keppni þar sem sigurvegarinn fær að launum 25 þúsund dollara og verður forsíðustúlka tímaritsins. Meðal þeirra sem taka þátt í keppninni eru leikkonan María Birta og fyrirsæturnar Hulda Lind, Bryndís Líf, Tanja Rós, Aníta Ösp Ingólfsdóttir og Svanhildur Hjaltadóttir.
Keppt er í 144 flokkum og hægt er að kjósa stúlkurnar með einföldum hætti á netinu. Til mikils er að vinna í keppninni en sigurvegarinn verður myndaður af ljósmyndaranum Gilles Bensimon og mun prýða forsíðu fyrsta tölublaðs næsta árs. Þá fær sigurvegarinn 25 þúsund dollara, rúmlega 2,7 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé.
Tímaritið Maxim var stofnað í Bretlandi árið 1995 og er í dag gefið út í 76 löndum um allan heim. Meðal þeirra sem prýtt hafa forsíðu blaðsins eru þær Britney Spears, Hilary Duff, Anna Kournikova, Lindsay Lohan og Cameron Diaz.