Bill Gates, stofnandi Microsoft tölvurisans og ríkasti maður heims er kröfuharður en skemmtilegur yfirmaður sem hatar hljóðið sem myndast þegar eiginkona hans bryður ísmola af áfergju. Blaðamaður Telepgraph eyddi þremur mánuðum með hinum 61 árs gamla auðjöfur með það fyrir augum að kynnast persónu hans betur.
Gates hefur setið í efsta sæti á lista Forbes yfir ríkustu menn heims síðustu tvo áratugi en auðæfi hans eru metin á 76 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um 8.500 milljörðum króna. Til samanburðar má nefna heildargjöld ríkissjóðs Íslands á þessu ári nema um 580 milljörðum kr.
Við athugun blaðamanns Telegraph kom meðal annars að dagskrá Gates er þéttbókuð af aðstoðarmönnum hans – og þar skiptir hver einasta mínúta máli. Fundir með hinum og þessum, og jafnvel bara það að taka í höndina á fólk þarf allt að eiga sér stað innan tímamarka.
Þá segir Jeo Cerrell, framkvæmdastjóri góðgerðarsamtaka Gates (Gates Foundation) að á ferðalögum megi nánast gulltryggja að koma að hótelbergi Gates séu yfirfull af tómum diet kók flöskum og undantekningarlaust sé ostborgarar snæddir í hádegismat, sama hvar þeir eru staddir í heiminum. „Það er yfirleitt alltaf einhver sendur að ná hamborgara. Ég er ekki viss um að Melina leyfi honum að borða það heima.“
Hann lýsir Gates einnig sem kröfuhörðum og óþolinmóðum yfirmanni. „Það er eins gott að þú vitir hvað þú ert að gera fyrir framan Bill, hann verður afskaplega pirraður þegar hann upplifir það þannig að tíma hans hafi verið sóað. En hann er mjög fyndinn og skemmtilegur- og alls ekki hrokafullur.
Sjálfur kveðst Gates líða best í stofunni í glæsihýsi sínu í Seattle- umvafin bókum og í frítíma sínum nýtur hann þess að eiga gæðsastundir með eiginkonu sinni Melindu þar sem þau ferðasta, fara á skíði, spila tennis og gera „fullt af hlutum“ eins og Gates orðar það sjálfur.
Þau eiga langt hjónaband að baki sem reynst hefur þeim gott og gjöfult en Melinda viðurkennir þó fúslega að ekkert hjónaband sé fullkomið. Þannig geti eiginmaður hennar auðveldlega látið ýmsa ávana hennar fara í taugarnar á sér, eins og þann ávana að bryðja ísmola með miklum látum.
Þá kveðst Gates sjálfur vera náttugla á meðan kona hans, andsætt við eiginkonu sína, og geti auðveldlega vakað fram á nætur ef hann kemst í góða bók. „Ég segi Melindu það samt aldrei ef ég þreyttur daginn eftir af því að þá skammar hún mig. Hún getur oft séð í gegnum mig!“