Gary Neville sérfræðingur Sky Sports var mættur að fylgjast með því þegar leikmaður ársins hjá FIFA var valinn í gær.
Neville var fyrir framan húsið þar sem viðburðurinn fór fram, í beinni útsendingu. Þar var hann að ræða við gesti og gangandi.
Neville reyndi að fá Mohamed Salah, kantmann Liverpool í viðtal en hann hafnaði því strax.
Salah fékk verðlaun fyrir mark ársins en komst ekki í lið ársins hjá FIFA.
Atvikið má sjá hér að neðan.