– Streitan var að fara með Jim Walker fyrrverandi fréttaþul NBC, CBS og Fox
Jim Walker, fyrrverandi fréttaþulur á bandarísku sjónvarpsstöðunum NBC, CBS og Fox, hefur tekið upp sviðsnafnið Dallas Steele og haslað sér völl sem leikari í klámmyndum fyrir samkynhneigða karlmenn.
Walker, sem er 44 ára gamall, segist hafa sagt skilið við sitt fyrra starf árið 2013 til að losna undan streitunni sem því fylgdi. Síðan þá hefur hann fengið sér fyllingar í báðar rasskinnar og segist ekki sjá eftir neinu.
„Ég nýt í dag meiri velgengni á alla vegu en einhvern tímann áður,“ segir Walker sem starfaði í fjölmiðlum í alls 23 ár.
Klámmyndaleikarinn segist hafa orðið fyrir aðkasti á internetinu sem rekja megi til aldurs hans.
„Mér þykir það leiðinlegt ef einhverjir hafa ákveðið að samkynhnegðir karlmenn yfir fertugu eigi einungis að klæðast stuttbuxum, flytja í úthverfin og spila bridds einu sinni í viku.“