Framleiðslufyrirtækið Springhill Entertainment hefur nú staðfest að til standi að gera framhald af körfuboltamyndinni vinsælu Space Jam. Þá hefur einnig verið staðfest að besti körfuboltamaður heims um þessar mundir, Lebron James, mun leika stórt hlutverk í myndinni.
Eins og margir muna eflaust eftir þá lék körfuboltagoðsögnin Michael Jordan aðalhlutverkið í fyrri myndinni en nú er komið að James að taka við keflinu. Fyrri myndin kom út árið 1996 og er enn þann dag í dag tekjuhæsta körfuboltamynd frá upphafi. Myndin rakaði inn 250 milljónum dollara.
https://www.instagram.com/p/Bn6y1Z-gf-6/?taken-by=springhillent
Tökur á myndinni hefast strax í byrjun næsta árs og vonast framleiðendur til að hún fari í sýningar árið 2020.