Ian Ladyman, blaðamaður Daily Mail segir að Neymar sóknarmaður PSG myndi ekki komast í byrjunarlið Liverpool.
Neymar átti ekki neitt sérstakan dag þegar Liverpool vann 3-2 sigur á Liverpool í Meistaradeildinni í gær.
Neymar er að margra mati einn besti knattspyrnumaður í heimi en samkvæmt Ladyman, þá kæmist hann ekki í byrjunarlið Liverpool.
,,Er Neymar með ótrúlega hæfileika? Það er klárt,“ skrifar Ladyman.
,,Hann verður líklega ekki lengi hjá PSG ef þeir geta ekki keppt í Evrópu, það mun hafa áhrif.“
,,Neymar kæmist samt ekki í þetta Liverpool, það hljómar skrýtið. Það hefur ekkert með hæfileika hans að gera, það hefur allt með það að gera hvernig hann spilar.“
,,Neymar vill bíða eftir boltanum og bíða framarlega á vellinum, það er ekkert rangt við það að en það er ekki það sem Klopp vill.“