Ellý Ármanns hefur svo sannarlega tekið heilsuna í gegn í ár.
Eftir að hafa byrjað æfingar í Reebok Fitness var henni boðið að kenna þar, og sló hún til og byrjar í dag með námskeiðið Topp form með Ellý.
Og núna um helgina lauk hún námskeiði í flotþerapíu. „Ég gerði loksins það sem mig hefur lengi lengi lengi dreymt um og það er að verða viðurkenndur leiðbeinandi í að halda utan um flotslökun,“ segir Ellý á Facebook-síðu sinni Ellý Ármanns Heilsa.