Ástin, eins dásamleg og hún er, endist ekki alltaf í samböndum og pör slíta þeim af af ýmsum ástæðum eða jafnvel engri.
Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með íslensku tónlistar- og skemmtanalífi að ein dáðasta söngkona landsins, Svala Björgvins, er flutt aftur til Íslands. Hún hefur ekki setið auðum höndum síðan og hefur vart undan að taka að sér verkefni, meðal annars nýtt lag og myndband með Reykjavíkurdætrum auk þess að troða upp með Stjórninni og Siggu Beinteins.
Þetta er tími mikilla breytinga hjá Svölu því heimildir herma að hún og eiginmaður hennar, Einar Egilsson, séu að ganga í gegnum skilnað. Þannig varð Einar eftir í Los Angeles í Bandaríkjum þar sem parið hefur haldið heimili undanfarin ár.
Svala og Einar hafa verið kærustupar í tæpan aldarfjórðung en þau giftu sig með pomp og prakt í Landakotskirkju í júlí 2013. Þau hafa í gegnum tíðina starfað saman að tónlist og skipuðu meðal annars tríóið Steed Lord, ásamt Edda, bróður Einars.
Í apríl 2008 beið þjóðin með öndina í hálsinum þegar fréttist af alvarlegu umferðarslysi sem Svala og Einar höfðu lent í á Reykjanesbraut ásamt Edda og föður bræðranna, Agli Einarssyni, upptökustjóra á RÚV. Áreksturinn var harður og mátti teljast mikil mildi að enginn hafi látið lífið í slysinu. Einar slasaðist mest af fjórmenningunum og þurfti meðal annars að dveljast á spítala í tvo og hálfan mánuð til þess að fá bót meina sinna.