Leiðtogar Eþíópíu og Eretríu opnuðu í dag landamærin á milli landa sinna eftir að þau hafa verið lokuð undanfarin 20 ár. Friðarsamningar á milli ríkjanna voru undirritaðir þann 9 júlí síðastliðin og mun opnunin þýða að viðskipti á milli landana mun geta átt sér stað.
Samband þjóðanna hefur aukist hratt undanfarna mánuðum og hefur flug aftur hafist á milli landa ásamt því að ríkisstjórnir landanna hafa ákveðið að setja fjármuni í að laga vegakerfið sem tengir löndin saman. Sendiráð hafa aftur verið opnuð og hafa herir landanna hafist handa við að hreinsa upp landsprengjur við landamærin. Þúsundir jarðsprengja eru enn á svæðinu og er talið að það geti tekið allt að 5 ár að finna allar jarðsprengjur á landamærunum.
Stríðið á milli þjóðanna tveggja stóð yfir frá árunum 1998 til 2000 og er talið að á milli 100.000 til 300.000 manns hafi látið lífið í átökunum þjóðanna.