Hönnunarmiðstöð Íslands óskar eftir ábendingum til Hönnunarverðlauna Íslands 2018.
Til að hljóta Hönnunarverðlaun Íslands 2018 þurfa hönnuðir að vera félagar í einu af aðildarfélögum Hönnunarmiðstöðvar Íslands eða vera fagmenn á sínu sviði. Ný verk teljast til þeirra verka sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þrem árum fyrir afhendingu verðlaunanna.