Kynfæri kvenna eru ekki beinlínis ný uppfinning en ótrúlega margar konur vita alls ekki nógu mikið um líkama sinn. Þessi skemmtilega og greinargóða bók geymir allt sem þú þarft að vita um kynfærin og kynlíf, getnaðarvarnir, kyn- og kvensjúkdóma og svarar spurningum sem stundum er erfitt að spyrja.
Þessi skemmtilega og greinargóða bók geymir allt sem þú þarft að vita um kynfærin og kynlíf. Hér geturðu kynnt þér dýpstu leyndardóma snípsins, villtan hormónadans tíðahringsins og hvernig getnaðarvarnir virka á líkamann. Þú getur líka lesið þér til um algenga kyn- og kvensjúkdóma og fundið svör við spurningunum sem stundum er erfitt að spyrja.
Læknanemarnir Ellen Støkken Dahl og Nina Brochmann eru höfundar þessarar mikilvægu bókar sem er myndskreytt af Tegnehanne, teiknara og hjúkrunarfræðingi. Saga Kjartansdóttir þýddi.
„Þú ert með heimskort á milli fótanna og þar eru margar ókannaðar slóðir. Þessi bók er Lonely Planet-leiðsögubókin þín um svæðið þarna niðri.“ Women’s Health