Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, kom inná í dag er liðið mætti Burnley í ensku úrvalsdeildinni.
Staðan var 2-0 fyrir United þegar Rashford kom við sögu en Romelu Lukaku sá um að skora þau.
Rashford hefur oft átt betri daga en hann fékk beint rautt spjald í síðari hálfleik eftir viðskipti við Phil Bardsley.
Mikið er nú rætt um atvikið og vilja margir meina að Bardsley hafi einnig átt að fá rautt spjald.
Bardsley virtist sparka í Rashford áður en sá síðarnefndi ákvað að bregðast við á heimskulegan hátt.
Atvikið má sjá hér.
How did #Bardsley escape a red? firstly for the kick out at #Rashford and then he reacts and puts his head into Rashford as well ? #Mufc pic.twitter.com/pfABniimxN
— Gearóid Mac Suibhne (@Ger_Sweeney) 2 September 2018